Um mig
Ég heiti Ágúst Ævar Guðbjörnsson og er 27 ára, oft nefndur Gústi. Ég starfa sem hönnuður á umbroti, upptökum og margskonar margmiðlunarefni.
Hóf snemma að „fikta“ á tölvurnar, og út frá því stofnaði ég hið fyrsta íslenska deilinet að nafni „Direct Connect Iceland’s“ eða „DCI.is“ eins og margir nefna það.
Árið 2003 ákvað ég að leggja í nám við Nordic Multimedia Academy í Kolding í Danmörku, og útskrifaðist ég þaðan vorið 2005. Snemma það ár hóf ég sjálfstæðan rekstur sem bar og ber nafnið Nebonmedia, en það þjónar margskonar viðskiptavinum á borð við Glitnir Bank, NasduaqOMX, Rauða Krossinn o.fl.
Á skólagöngunni kynntist ég kennara og athafnamanni frá San Francisco sem rekur þar upptöku fyrirtækið MediaPosse. Þangað hef ég farið með reglulegu millibili til þess að læra kvikmyndagerð, en það er stórt áhugamál hjá mér í dag.
Í September 2008 sameinaði ég Nebonmedia við danskt fyrirtæki að nafni Fidro Holding ApS, ég er einn af 5 sem rekum fyrirtækið, og hefur það veitt mér óteljandi tækifæri þegar við kemur hönnun og rekstri fyrirtækja.
Hafðu samband
Sími: 615-6056
Netfang: agust@nebonmedia.com

