30th janúar
2010
Ég notast við vélina Sony-EX1 og þykir mér hún afbragðs vinnutæki, þrátt fyrir að mörgum þyki bæði EX-1 og EX-3 vélarnar fremur litlar til þess að skjóta fríhendis.
Í fyrra fjárfesti ég í afbragðs tóli sem kallast „MultiRig„, þetta hjálpar ótrúlega mikið til við að taka fríhendis skot. Þá sérstaklega ef þú vilt ná hreyfingum ss. bílum, atburðum og þar fram eftir.
Langaði einnig að smella hingað inn krækju á skemmtilega punkta frá Sony um upptökur á EX-1 og þá möguleika sem vélin bíður upp á.
Hef lítið verið að skjóta undanfara mánuði vegna flutninga, en planið er að streyma einhverju hingað inn með tímanum og halda vefnum lifandi.
