Fyrir all nokkrum mánuðum las ég áhugaverða grein um gerð Hringadrottningssögu trilogyunnar. Það var fróðlegt að sjá hvernig þeir settu saman mismunandi ljósmyndir og bygðu upp nýjar víddir út frá þeim, þar á meðal með hjálp þrívíddar og/eða litlum hreyfingum ss. reyk, ljósi og öðrum smá munum til þess að kveikja ljósmyndirnar til lífsins. Þessi tækni er án efa skemmtileg fyrir áhugamenn á eftirvinnslu mynda, hvort sem um er að ræða ljósmyndir eða upptökur. Hún er ódýr og í mörgum tilfellum þarf lítið til.
Fyrirbærið nefnist „Digital Matte Painting„, en hún hefur verið notuð til kvikmyndagerða í yfir 110 ár (frá c.a 1907). Í dag er „Digital Matte Painting“ oft notað yfir slangið – þett’er photoshopað – en þar ertu að taka margskonar ljósmyndir m.a og byggja úr þeim sett.
Smellti nokkrum sýnishornum hér fyrir neðan, myndirnar tala fyrir sig.
Sýnishorn frá Matte Painting í ljósmyndun:
Sjá sýnishorn »
Tvö sýnishorn frá Matte Painting í kvikmyndum:
