Main image
1st febrúar
2010
written by Ágúst Ævar Guðbjörnsson

Þvílíkt gull, Fede Alvarez’s sem gerði myndbandið hefur líklega ekki búist við $30 Milljón dollara samning við Hollywood þegar hann smellti verkefninu sínu á YouTube. Kostnaður myndbandsins voru u.þ.b $300 dollarar.

30th janúar
2010
written by Ágúst Ævar Guðbjörnsson

Janúar hefur verið fremur fjölbreytilegur mánuður þegar kemur að vefhönnunar hlutanum hjá mér. Mörg verkefnin hafa verið krefjandi og skemmtileg.

Þar á meðal stórt verkefni sem ég er að vinna þessa mánuðina fyrir fyrirtæki sem nefnist „Luxury Adventures“, en þeir starfa innan túristabransans hér á Íslandi og á norðurlöndunum. Verkefnið snýst um að útbúa allt kynningarefni fyrirtækisins frá grunni, þar má nefna vefsíðu (sem er kominn í loftið), bæklinga, USB lykil með kynningu og fleira í þeim dúr.

Vefsíða Luxury Adventures

Mörg smærri verkefni eru einnig kominn á „DONE“ listann :) , en ég er frekar óduglegur við að uppfæra hjá mér geymsluna á skissunum, reyni að bæta úr því í vikunni. Hægt er að skoða það sem komið er inn hér :
http://files.nebonmedia.com

30th janúar
2010
written by Ágúst Ævar Guðbjörnsson

Ég notast við vélina Sony-EX1 og þykir mér hún afbragðs vinnutæki, þrátt fyrir að mörgum þyki bæði EX-1 og EX-3 vélarnar fremur litlar til þess að skjóta fríhendis.

Í fyrra fjárfesti ég í afbragðs tóli sem kallast „MultiRig„, þetta hjálpar ótrúlega mikið til við að taka fríhendis skot. Þá sérstaklega ef þú vilt ná hreyfingum ss. bílum, atburðum og þar fram eftir.

Langaði einnig að smella hingað inn krækju á skemmtilega punkta frá Sony um upptökur á EX-1 og þá möguleika sem vélin bíður upp á.

Hef lítið verið að skjóta undanfara mánuði vegna flutninga, en planið er að streyma einhverju hingað inn með tímanum og halda vefnum lifandi.

5th janúar
2010
written by Ágúst Ævar Guðbjörnsson

Langar að henda hingað inn tveimur tónlistarmyndböndum sem ég vann að síðastliðið sumar. Þáttaka mín í hvoru myndbandinu var leikstjórn, upptaka, klipping og eftirvinnsla.

Hauser Enghoff

Stella Blackrose

5th janúar
2010
written by Ágúst Ævar Guðbjörnsson

Fyrir all nokkrum mánuðum las ég áhugaverða grein um gerð Hringadrottningssögu trilogyunnar. Það var fróðlegt að sjá hvernig þeir settu saman mismunandi ljósmyndir og bygðu upp nýjar víddir út frá þeim, þar á meðal með hjálp þrívíddar og/eða litlum hreyfingum ss. reyk, ljósi og öðrum smá munum til þess að kveikja ljósmyndirnar til lífsins. Þessi tækni er án efa skemmtileg fyrir áhugamenn á eftirvinnslu mynda, hvort sem um er að ræða ljósmyndir eða upptökur. Hún er ódýr og í mörgum tilfellum þarf lítið til.

Fyrirbærið nefnist „Digital Matte Painting„, en hún hefur verið notuð til kvikmyndagerða í yfir 110 ár (frá c.a 1907). Í dag er „Digital Matte Painting“ oft notað yfir slangið – þett’er photoshopað – en þar ertu að taka margskonar ljósmyndir m.a og byggja úr þeim sett.

Smellti nokkrum sýnishornum hér fyrir neðan, myndirnar tala fyrir sig.

Sýnishorn frá Matte Painting í ljósmyndun:
Sjá sýnishorn »

Tvö sýnishorn frá Matte Painting í kvikmyndum:


4th janúar
2010
written by Ágúst Ævar Guðbjörnsson

Fyrsta færslan er alltaf erfiðust, nú þegar 5 ár eru liðin frá mínu síðasta bloggi langar mig að byrja nýja árið með stuttum greinum um daginn, veginn og drauma.

Það má segja að ný liðið ár hafi verið afar atburðaríkt, kominn heim eftir góð 6 ár í Danmörku, ný ást, nýtt heimili, nýjir draumar.

Charles Darwin orðar þetta vel:

It is not the strongest of the species that survive, nor the most intelligent, but the one most responsive to change.
Charles Darwin (1809-1882) English Naturalist

Vinnan gengur vel, það er frábært að vakna á morgnana og njóta þess að vinna við það sem maður elskar.

Læt flakka með mynd af upptökum frá Gram Slot, fallegur kastali sem liggur á Sunnanverðu Jótlandi.